Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. október 2020 var lögð fram fyrirspurn Áslaugar Geirsdóttur dags. 20. október 2020 ásamt bréfi dags. 19. október 2020 um stækkun á kjallara á suðaustur horni hússins á lóð nr. 3 við Aragötu og setja svalir, samkvæmt uppdr. Glámu/Kím ehf. dags. 8. október 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2020 og leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. nóvember 2020.