Á fundi skipulagsfulltrúa 5. september 2014 var lögð fram fyrirspurn
Roks ehf.
dags. 1. september 2014 varðandi færslu á stigahúsi, fjölgun íbúða og hækkun húss á lóðinni nr. 2-8 við Eddufell, samkvæmt uppdr. GP-arkitekta ehf. dags. 1. september 2014. Einnig er lagt fram bréf GP-arkitekta ehf. dags. 1. september 2014. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. september 2014.