Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Roks ehf.
dags. 26. nóvember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2-8 við Eddufell. Í breytingunni felst m.a. fjölgun íbúða, niðurfelling bílageymslu, breyting á bílastæðaskilmálum, óveruleg breyting á hámarkshæðum og lóðarstærð o.fl., samkvæmt uppdr. GP-arkitekta ehf. dags. 26. nóvember 2014. Tillagan var auglýst frá 5. janúar til og með 17. febrúar 2015. Engar athugasemdir bárust.