Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 11. mars 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. mars 2011 þar sem spurt var hvort leyfi fengist til að dýpka svalir um 50 cm á fjölbýlishúsinu nr. 27 og 29 á lóð nr. 27-70 við Svarthamra. Erindinu var frestað og vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju.