Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. maí 2021 var lögð fram fyrirspurn a2f arkitekta ehf. dags. 17. maí 2021 um breytingu á deiliskipulagi Kringlubæjar 2. áfanga vegna lóðarinnar 14 við Ofanleiti sem felst í niðurrifi á núverandi byggingu lóðarinnar og byggingu lítils fjölbýlishúss ásamt bílakjallara, norðar á lóðinni. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. júní 2021.