Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Fríðu Bjarkar Einarsdóttur, dags. 12. ágúst 2022, um breytingu á notkun hússins á lóð nr. 20 við Súðarvog úr skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2022.