Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. ágúst 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta verslunarrými 0101, í kaffihús, veitingastað í flokki ll, tegund e, fyrir 30 gesti á 1. hæð og innrétta gallerý með verslun í kjallararými 0001, í verslunar- og íbúðarhúsi á lóð nr. 6 við Garðastræti.
Erindi fylgir yfirlýsing rýmiseiganda um leigusamning við umsækjanda dags. 19. júli 2021. Gjald kr. 12.100