Á fundi skipulagsfulltrúa 1. júlí 2016 var lögð fram umsókn H.G.G
Fasteign ehf.
dags. 22. júní 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi að Austurstræti 10A samkv. uppdr. og teikningum
Form ráðgjafar ehf.
dags. 3. júní 2016. Í breytingunni felst m.a. að lyfta þaki til að auka lofthæð við útveggi en mænishæð er haldið óbreyttri, á fimmtu og efstu hæð hússins, nýr glerskáli byggður til norðurs með skyggnum til hliða, skyggni sett á núverandi glerskála auk þess sem svalir eru skilgreindar austan megin nýs glerskála og gluggasetningu er breytt. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júlí 2016.