Lögð fram fyrirspurn Forms ráðgjafar ehf., mótt. 16. ágúst 2016, um breytingu á fimmtu hæð hússins á lóð nr. 10A við Austurstræti sem felst í nýjum glerskála til norðurs (Austurstrætismegin) með þakskyggni beggja vegna við, lyfta þaki að hluta til að auka lofthæð við útveggi í stofu og eldhúsi, en mænishæð er haldið óbreytt og koma fyrir þakskyggnum á austur og vesturhlið núverandi glerskála sem er á suðurhlið hússins (að Austurvelli), samkvæmt uppdr. Forms Ráðgjafar ehf., dags. 10. ágúst 2016. Einnig er lagt fram bréf Ágústs Hafsteinssonar f.h. arkitektastofunnar Form ráðgjöf ehf., dags. 10. ágúst 2016.