Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2018 var lögð fram umsókn Forms ráðgjafar ehf. dags. 6. september 2018 ásamt bréfi dags. 31. ágúst 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar, með síðari breytingum, vegna lóðarinnar nr. 10A við Austurstræti. Í breytingunni felst að breyta notkun 5. hæðar hússins úr íbúð í atvinnuhúsnæði, samkvæmt uppdr. Forms Ráðgjafar ehf. dags. 10. ágúst 2016 síast br. 15. júní 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti frá Forms ráðgjafar ehf. dags. 17. september 2018 þar sem óskað er eftir að erindi er breytt úr umsókn í fyrirspurn. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags 19. september 2018.