Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. apríl 2016 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Gunnlaugssonar, mótt. 21. mars 2016, um að innrétta tvær nýjar íbúðir og kaffihús á 1. hæð hússins á lóð nr. 19 við Tunguveg ásamt hækkun á þaki hússins, samkvæmt uppdr. Guðmundar Gunnlaugssonar, dags. 15. mars 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Ólafíu M. Magnúsdóttur og Sæmundar Pálssonar f.h. T-19 ehf. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.