Lögð fram umsókn
Hverfis ehf.
dags. 29. ágúst 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðarinnar nr. 78 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst stækkun á bakhúsi og breyttri notkun, samkvæmt uppdr. Gunnlaugs Jónassonar arkitekts dags. 21. ágúst 2013. Einnig lagður fram tölvupóstur Gunnlaugs Jónassonar dags. 19. september 2013 þar sem umsókn er dregin tilbaka.