Lögð fram umsókn
Hverfis ehf.
dags. 5. desember 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðarinnar nr. 78 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að heimilt verði að rífa bakhús og í stað þess verði gert ráð fyrir fjögurra hæða húsi á baklóð ásamt leyfi til að hafa hótel eða gistiheimili á lóðinni, samkvæmt uppdr. Gunnlaugs Jónassonar ark. dags. 5. desember 2013. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 19. maí 2016.