Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Hverfis ehf.
dags. 5. varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðarinnar nr. 78 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að byggðar verði þrjár hæðir ofan á hús sem stendur í bakgarði ásamt leyfi til að hafa hótel eða gistiheimili á lóðinni, samkvæmt uppdr. Gunnlaugs Jónassonar ark. dags. 5. desember 2013. Tillagan var auglýst frá 17. janúar til og með 28. febrúar 2014. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Guðfinna J. Guðmundsdóttir hdl. f.h. Vesturgarða ehf. dags. 27. febrúar 2014. Einnig eru lögð fram andmæli Mark Wilson og Kristins I. Jónssonar dags. 13. mars 2014 f.h. eigenda og réttarhafa lóðarinnar að Hverfisgötu 78 við athugasemdum Guðfinnu J. Guðmundsdóttur hdl. f.h. Vesturgarða ehf. dags. 27. febrúar 2014. Einnig lögð fram umsögn skrifsstofu sviðsstjóra dags. 28. mars 2014.