breyting á deiliskipulagi
Frostaskjól 24
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 739
16. ágúst, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er nú lögð fram að nýju umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg dags 3. júlí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Eiðsgrandi, stofnanasvæði vegna lóðarinnar nr. 24 við Frostaskjól. Breytingin felst í því að afmarkaður er byggingarreitur fyrir núverandi hús og eina færanlega stofu til viðbótar ásamt tengigangi. Erindið var grenndarkynnt frá 15. júlí 2019 til og með 12. ágúst 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

107 Reykjavík
Landnúmer: 105781 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010820