Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, svalir við stigahús og lækka gólf kjallara Klapparstígs 31 og rífa kjallara eldri viðbyggingar, byggja viðbyggingu aftan við timburhús á Laugavegi 23, innrétta verslanir á jarðhæðum og skrifstofur og tvær íbúðir á efri hæðum húsa á sameinaðri lóð nr. 23 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. nóvember 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. júlí 2016 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júlí 2016 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 23.2. 2016. Stækkun: 96,4 ferm., 363,4 rúmm. Eftir stækkun, A-rými: 815,7 ferm., 2.260,8 rúmm. B-rými: xx ferm., xx rúmm. C-rými: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 10.100