Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. febrúar 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu og svalir við stigahús Klapparstígs 31 og byggja viðbyggingu aftan við timburhús á Laugavegi 23, innrétta verslanir á jarðhæðum og skrifstofur og tvær íbúðir á efri hæðum húsa á lóð nr. 23 við Laugaveg. Stækkun: 96,4 ferm., 366,9 rúmm. Gjald kr. 10.100