Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. apríl 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. apríl 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi og innrétta veitingastað, með litlum kvikmyndasal, í flokki ll tegund A fyrir alls 80 gesti, lækka gólf innan við bar og í kvikmyndasal og endurnýja glugga og hurðir 1. hæðar, í rými 0101 í skrifstofuhúsi á lóð nr. 11 við Tryggvagötu. Jafnframt eru erindi BN058861 og BN059862 dregin til baka. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. apríl 2022.