Lögð fram umsókn
Plúsarkitekta ehf.
dags. 21. desember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Íbúðarsvæði við Rafstöðvarveg vegna lóðarinnar nr. 25 við Rafstöðvarveg. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni lóðararinnar sem felst í að gera gera viðbyggingu við íbúðarhús auk gufubaðs með skiptiaðstöðu inn á lóðinni ásamt niðurrifi á núverandi bílgeymslu og endurbyggingu hennar innar á lóðinni, samkvæmt uppdr.
Plúsarkitekta ehf.
dags. 20. desember 2018.