Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. apríl 2016 þar sem spurt er hvort byggja megi létta svalalokun við íbúð 0401 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 30 við Bræðraborgarstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. maí 2016.