Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju lýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. 2. nóvember 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bjarkarás vegna lóðanna nr. 9 og 11 við Stjörnugróf og 10 við Bústaðablett Í breytingunni felst að auka byggingarmagn á lóðunum. Einnig er lögð umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 24. ágúst 2016. Kynning stóð til og með 13. desember 2016. Eftirtaldir sendu inn athugasemir/ábendingar: Þóra Þórarinsdóttir f.h. Áss styrktarfélags, dags. 14. desember 2016. Einnig eru lögð fram umsögn Skipulagsstofnunar, dags. 30. nóvember 2016 og umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 9. deseber 2016.