Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. apríl 2015 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta gististað í flokki II, tegund gistiheimili, einnig er gerð grein fyrir ýmsum áður gerðum breytingum á húsi, s.s. að lækka gólf í kjallara í framhúsi og lækka land og byggja brú, sbr. erindi BN047497 sem var frestað, yfir gjána milli framhúss og bakhúss, á lóð nr. 11 við Vitastíg. Gjald kr. 9.823