Lögð fram umsókn Rauðagerðis ehf., mótt. 5. janúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.2 vegna lóðarinnar nr. 11 við Vitastíg. Í breytingunni felst að hækka mæni húss, lækka kjallaragólf og lækka lóð milli fram- og bakhúss ásamt byggingu þjónustuhúss á lóðarmörkum Vitastígs 11 og 13, samkvæmt uppdr. Zeppelin arkitekta ehf., dags. 15. desember 2015. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 21. desember 2015 og umboð Alfreðs Haukssonar h.f. Ráðagerðis ehf., dags. 4. janúar 2016.