Lagt fram bréf Guðmundar Kristinssonar dags. 14. febrúar 2014 þar sem farið er fram á að vinna við gerð deiliskipulags reits 1.184.2 verði hraðað eins og mögulegt er, eða á annan hátt verði séð til þess að hægt verði að hefja uppbyggingu á lóð nr. 6 við Þórsgötu án frekari tafa. Einnig er óskað eftir skýrum svörum varðandi fyriráætlanir Reykjavíkurborgar vegna þessa máls.