Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Stefáns Þ. Ingólfssonar, mótt. 8. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts 1, neðra Breiðholts, vegna húss nr. 19 á lóð nr. 17-23 við Skriðustekk. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir viðbyggingu við suðurhlið húss nr. 19 við Skriðustekk, samkvæmt uppdr. Mannvirkjameistarans ehf., dags. 5. febrúar 2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 10. mars til og með 7. apríl 2016. Engar athugasemdir bárust.