Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. júní 2016 var lögð fram umsókn Plúsarkitekta, dags. 3. júní 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bykoreits skv. tillögu að forhönnun, dags. 14. júní 2016. Helstu breytingar eru: að skilgreina fjölda íbúða samkvæmt AR 2010-30 og að skilgreina landnotkun í samræmi við stefnu í AR 2010-30 um aðalgötur. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig er lagt fram bréf Ingva Arnar Sigurjónssonar f.h. húsfélaga að Sólvallagötu 80, 82 og 84.