Lögð fram fyrirspurn Nitur ehf. dags. 27. júlí 2015 varðandi breytingu á aðal- og deiliskipulagi reits 1.138, Bykoreits, sem felst í fjölgun íbúða á reitnum. Einnig er óskað eftir skilgreiningu á bundnum byggingarlínum við Hringbraut og Sólvallargötu, kröfu um að allar íbúðir skuli vera gegnumgangandi með mótlæga útveggi og hæðarsetningu bygginga miðað við götu, lyftustokka og þakburðavirki, samkvæmt tillögu
Plúsarkitekta ehf.
dags. júlí 2015.