Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi framkvæmda- og eignasviðs dags. 26. apríl 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarholt austur. Í breytingunni felst að bæta við byggingarreit austan lóðarmarka Sæmundarskóla og koma þar fyrir til bráðabirgða færanlegum kennslustofum, samkvæmt uppdrætti Kanon arkitekta dags. 25. apríl 2012. Tillagan var auglýst frá 30. maí til og með 13. júlí 2012. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Júlíus Benediktsson og Guðni Sigurmundsson dags. 27. júní 2012. Einnig er lagður fram tölvupóstur dags. 30. ágúst þar sem umsókn er dregin tilbaka.