Lögð fram umsókn Ágústs Þórðarsonar, mótt. 31. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 21-23 við Jöklasel. Í breytingunni felst að stækka lóð og fjölga bílgeymslum um eina, samkvæmt uppdr. Ágústs Þórðarsonar, dags. 31. mars 2017.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.