Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að setja niðurgrafna grenndarstöð fyrir endurvinnslu úrgangs á lóð nr. 11A við Óðinsgötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 19. desember til og með 19. janúar 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/ábendingar: Stefanía Ósk Arnardóttir, dags. 19. desember 2016, Anna Þ. Guðjónsdóttir, dags. 16. janúar 2017, LEX lögmannsstofu f.h. eigenda að Freyjugötu 1, dags. 18. janúar 2017 og Birna Þórðardóttir, dags. 19. janúar 2017. Gjald kr. 10.100