Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að skipta þriðju hæð í tvö sjálfstæð skrifstofurými með eigin flóttaleiðum og sameiginlegu flóttasvæði sem eru svalir sem byggðar verða á suðurhlið húss á lóð nr. 14 við Suðurlandsbraut. Gjald kr. 11.000