3. hæð - útleigurými
Suðurlandsbraut 14
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 682
25. maí, 2018
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. maí 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að skipta þriðju hæð í tvö sjálfstæð skrifstofurými með eigin flóttaleiðum og sameiginlegu flóttasvæði sem eru svalir sem byggðar verða á suðurhlið húss á lóð nr. 14 við Suðurlandsbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. maí 2018.