Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. júlí 2016 var lögð fram umsókn Alark, dags. 30. júní 2016 um breytingu á deiliskipulagi Egilshallar að Fossaleyni 1 skv. uppdráttum, dags. 17. júní 2016. Sótt er um breytingu á byggingareitum og byggingamagni á reitum D og H. Vegna fyrirhugaðs stærra handboltahúss er sótt um leyfi til að breyta lögun byggingareits H og auka byggingamagn um 3000 m2. Sótt um leyfi til að færa byggingareit D fyrir bílgeymsluhús, til suðurs á lóð. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.