Á fundi skipulagsfulltrúa 5. september 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. september 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir og geymslur á bakhlið og innrétta tvær íbúðir á 3. hæð húss á lóð nr. 51 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt fyrri umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2014. Gjald kr. 9.500
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir að skrifstofuhúsnæði á 3. hæð sé breytt í íbúðarhúsnæði, en sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi til að byggja svalir á 3. hæð sbr. fyrri umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2014.