Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa var lögð fram fyrirspurn Arnar Þórs Halldórssonar dags. 10. september 2013 um að breyta 2. og 3. hæð hússins á lóðinni nr. 51 við Laugaveg í 4 íbúðir ásamt byggingu svala og útbygginga á götuhlið út fyrir byggingarreit, samkvæmt uppdr. Frumhönnunar ehf. dags. 10. september 2013, breytt 26. september 2013. Fyrirspurn var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2013.