Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. ágúst 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistiskála á 2. og 3. hæð verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 51 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. september 2013.