Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. október 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr úr timbri á steyptum undirstöðum, veggir eru klæddir með múrklæðningu að utan og gifsi að innan, en bárujárn er á þaki, sbr. fyrirspurn BN048092, við einbýlishús á lóð nr. 22 við Háagerði. Erindi var grenndarkynnt frá 15. október til og með 12. nóvember 2014. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir: 35 ferm., 151,6 rúmm. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21.8. 2014, fylgir fyrirspurn. Gjald kr. 9.500