Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Birgittu Guðrúnar S. Ásgrímsdóttur dags. 15. desember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heiðargerðisreits vegna lóðarinnar nr. 98 við Heiðargerði. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður, samkvæmt uppdrætti á stofunni arkitektar dags. 4. nóvember 2010. Kynningin stóð yfir frá 29. desember 2010 til og með 26. janúar 2011. Engar athugasemdir bárust.