Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 20. ágúst 2013 þar sem sótt er um leyfi til að hækka ris, byggja tvo kvisti og svalir á fjölbýlishús á lóð nr. 62 við Víðimel. Erindi var grenndarkynnt frá 28. ágúst til og með 25. september 2013 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst dags. 3. september 2013 er erindið nú lagt fram að nýju. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda á lóð, og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. júní 2013, einnig umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. júní 2013, útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa dags 19. júlí 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. júlí 2013. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.000 + 9.000