Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. júlí 2019 var lögð fram fyrirspurn Magnúsar Jóns Björnssonar dags. 11. júlí 2019 ásamt greinargerð dags. 11. júlí 2019 um að gera innkeyrslu á lóð nr. 9 við Stýrimannastíg svo unnt sé að hlaða rafmagnsbíl. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. ágúst 2019.