Á fundi skipulagsfulltrúa 6. maí 2016 var lögð fram umsókn
Arkís arkitekta ehf.
f.h.
Ottó ehf.
, mótt. 27. apríl 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðarinnar nr. 19 við Klapparstíg og nr. 1 við Veghúsastíg. Í breytingunni felst að skilgreindir eru tveir nýjir byggingarreitir á lóð ásamt byggingarreitur fyrir smáhýsi. Innan byggingarreits fyrir smáhýsi er heimilt að reisa palla og smáhýsi allt að 2.2 metrum að hæð. Einnig er gert er ráð fyrir 6 íbúðum á lóð, en ekki er gert ráð fyrir bílastæðum á lóð. Jafnframt verða byggingar á lóð nr. 1 við Veghúsastíg fjarlægðar, samkvæmt uppdr.
Arkís arkitekta ehf.
, dags. 27. apríl 2016. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.