Lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 12. maí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðarinnar nr. 19 við Klapparstíg og nr. 1 við Veghúsastíg. Í breytingunni felst að friðaður steinbær verður festur í sessi, varðveittur og gerður upp í samráði við Minjastofnun Íslands, heimilt verður að rífa einlyftar byggingar á baklóð og timburhús að Veghúsastíg 1 ásamt því að á tveimur byggingarreitum er gert ráð fyrir sambyggðum húsum í tveimur röðum með mænisþökum á hverri einingu, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 9. maí 2022. Einnig eru lagðar fram skýringarmyndir dags. 31. maí 2016 og Skuggavarp dags. 19. apríl 2022.