breyting á deiliskipulagi
Klapparstígur 19
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 892
10. nóvember, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 12. maí 2022 um breytingu á deiliskipulagi Skuggahverfis vegna lóðarinnar nr. 19 við Klapparstíg. Í breytingunni sem lögð er til felst að friðaður steinbær verður festur í sessi, varðveittur og gerður upp í samráði við Minjastofnun Íslands, heimilt verður að rífa einlyftar byggingar á baklóð og timburhús að Veghúsastíg 1 ásamt því að á tveimur byggingarreitum er gert ráð fyrir sambyggðum húsum í tveimur röðum með mænisþökum á hverri einingu, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. Arkís arkitekta ehf., dags. 9. maí 2022. Einnig er lagður fram skýringaruppdráttur, dags. 31. maí 2016 og skuggavarpsuppdrættir, dags. 17. ágúst 2022. Tillagan var auglýst frá 27. september 2022 til og með 8. nóvember 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingar: Veitur ohf. dags. 26. október 2022.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

101 Reykjavík
Landnúmer: 101047 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025789