Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. febrúar 2017 var lögð fram fyrirspurn LMB lögmanna slf., mótt. 1. febrúar 2017, varðandi rekstur gististaðar í flokki II í kjallara hússins á lóð nr. 10 við Laufásveg. Einnig er lagt fram bréf LMB lögmanna slf., dags. 24. janúar 2017. fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. febrúar 2017..