Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júlí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. júlí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að gera svalir á íbúð 0402 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 10 við Laufásveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. ágúst 2022.