Á fundi skipulagsstjóra 30. september 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. september 2011 þar sem sótt er um samþykkt á áður gerðum breytingum og stækkun á einbýlishúsi á lóð nr. 14 við Óðinsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 11.október 2011. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 8.000 + xx
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Óðinsgötu 14A og Bjargarstíg 14 og 16.