Á fundi skipulagsstjóra 11. nóvember 2011 var lögð fram fyrirspurn
Laugar ehf.
dags. 10. nóvember 2011 varðandi rekstur veitingastaðar á jarðhæð hússins á lóðinni nr. 74 við Laugaveg í stað verslunar. Einnig eru lagðir fram uppdrættir Zeppelin Arkitekta dags. 3. mars 2011. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.