Á fundi skipulagsfulltrúa 12. september 2014 var lögð fram fyrirspurn
Reir ehf.
dags. 12. september 2014 um að hús sem er á lóð nr. 9 við Vegamótastíg verði fært á baklóð að Grettisgötu 54. Fyrirspurn var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. september 2014.