Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. febrúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Arnbjörns Ingimundarsonar dags. 5. febrúar 2019 varðandi stækkun hússins nr. 48 á lóð nr. 48-52 við Granaskjól, samkvæmt uppdr. Gunnlaugs Jónssonar arkitekts dags. 27. janúar 2019. Samþykki meðlóðarhafa fylgir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2019.