Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048548 þannig að viðbygging á norðurhlið er stækkuð á húsi nr. 48 á lóð nr. 48-52 við Granaskjól. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 31. janúar 2019 og bréf frá hönnuði dags. 16. apríl 2019. Stækkun: 3,6 ferm. 12,9 rúmm. Gjald kr. 11.200